16. maí 2012
Barnaverndarstofa stendur fyrir ráðstefnu um samvinnu skóla og barnaverndar á Grand hótel Reykjavík, 29. maí 2012, klukkan 8:30-16:00. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Skólastjórafélag Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök félagsmálastjóra, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Barnavernd Reykjavíkur.
Lesa meira15. maí 2012
Endilega athugið þessi áhugaverðu námskeið.
Lesa meira03. maí 2012
Ársfundur FSL haldinn 12. apríl 2012 í Hofi Akureyri fagnar því að margir rekstraraðilar leikskóla hafa fundið leiðir til að búa leikskólunum svigrúm til að vinna að innleiðingu aðalnámskrár leikskóla. Ársfundurinn skorar á þær sveitarstjórnir og aðra rekstraraðila leikskóla sem ekki hafa fundið leiðir til þess að nýta sér hugmyndaauðgi þeirra.
Ársfundur FSL haldinn 12. apríl 2012 í Hofi Akureyri hvetur félagsmenn sína til að draga fram allt það jákvæða og faglega sem íslenskt leikskólastarf býður upp á með það að leiðarljósi að sýna fram á að kennarastarf í leikskólum er eftirsóknarvert.
Lesa meira
26. apr. 2012
Í frétt frá Hagstofu Íslands um leikskóla kemur m.a. fram að frá desember 2009 til sama mánaðar árið 2011 fjölgar körlum í starfi í leikskólum um 64, en konum fækkar um 188. Einkum fjölgar körlum sem starfa við kennslu. Þeir voru 197 árið 2009 en 253 árið 2011, og hafði því fjölgað um 28,4% á tveimur árum. Á þessu tveggja ára tímabili fækkaði konum í sömu störfum um 154; 3,1%. Í desember 2011 störfuðu 5.515 manns í 4.798 stöðugildum við leikskóla á Íslandi. Það er fjölgun um 27 starfsmenn frá fyrra ári (0,5%) og stöðugildum fjölgaði einnig um 27 (0,6%). Leikskólabörnum hefur fjölgað um 198 á sama tíma, eða um 1,0%. Frá desember 2009 hefur leikskólabörnum fjölgað um 443 en starfsmönnum fækkað um 124, segir í frétt Hagstofu Íslands.
Lesa meira
10. apr. 2012
Alþjóðleg ráðstefna um útinám og náttúruleg leiksvæði verður haldin við Menntavísindasvið Háskóla Íslands frá 31. maí til 2. júní 2012.
Lesa meiraLesa allar fréttir